Velkomin

    Lítið hús til leigu

            Hús til leigu

          Íbúðir til leigu

   Herbergi til leigu

                     Bókun

                       Verð

   Kort af Reykjavik

                Afþreying

                Umsagnir

                    Myndir

                   Tenglar

     
   

Member of Iceland Tourist Guides' Association

 
     
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Rent a flat Heim Leiðarkort

Leigðu fallegt og notalegt einbýlishús í höfuðborginni!

Fullbúið heimili fyrir alla fjölskylduna er besti kosturinn þegar fjölskyldan fer í frí! Húsið er tvílyft bárujárnsklætt timburhús, rúmlega hundrað ára gamalt og hefur allt verið uppgert af núverandi eigendum. Hér mætast andblær liðins tíma og nútíma þægindi, falleg antík húsgögn og fyrsta flokks rúm sem tryggja gestum góða hvíld. Verið velkomin að gista hjá okkur og njótið allra þeirra þæginda sem raunverulegt heimili hefur að bjóða. Staðsetningin er miðsvæðis og stutt til allra átta.
Laugavegurinn liggur samhliða Grettisgötunni og örstutt bæði í Bónus og Sandholts-bakarí. Bestu kaffihúsin, matsölustaðirnir og sælkeraverslanirnar eru allt um kring.

Í húsinu er 3 svefnherbergi með samtals 8 rúmum, herbergin eru með vaski og sjónvarpi, Eitt baðherbergi er í húsinu með bæði sturtu og baðkari.
Eldhúsið er vel búið tækjum og í borðstofunni sem ber svipmót gamals tíma, með húsgögnum frá aldamótunum 1900, þar sem 10 manns geta setið saman til borðs.

Grunnmynd af húsinu og fleiri myndir.

Besti kostur fjölskyldunnar í fríinu! Við bjóðum ykkur velkomin á heimili okkar í Reykjavík.

Forsæla er reyklaus.

 Einbýlishús til leigu í miðbæ Reykjavíkur


Forsæla Hús Íbúðir Herbergi Bókun Verð Kort af Reykjavík Afþreying Umsagnir Myndir Tenglar Leiðarkort

 

FORSAELA apartmenthouse Grettisgata 33b - 35b, 101 Reykjavík gsm: +354 863-4643 sími: +354 551-6046
email
: info@apartmenthouse.is