|
Leigðu íbúðir í rólegu og vinalegu umhverfi í miðbæ
Reykjavíkur!
Besta gistingin fyrir pör, fjölskyldur með börn eða vini í fríi á
Íslandi.
Hver hótelíbúð er með sér eldhús og hentar allt að 4 gestum.
Þrjár íbúðir, vel búnar húsgögnum í fallegu bárujárnshúsi í miðbæ
Reykjavíkur. Húsið er eitt hundrað ára gamalt og hefur allt verið gert
upp af eigendunum, Hlín og Sigurgeiri, sem búa í næsta húsi við hliðina.
Þau taka á
móti gestum og sjá um alla þjónustu. Íbúðirnar eru til leigu allt árið
um kring en lágmarksdvöl eru þrjár nætur.
Lýsing á íbúðunum: Hver íbúð hefur eitt svefnherbergi með tveimur rúmum
sem setja má saman í eitt tvíbreitt rúm, stofu með tvíbreiðum svefnsófa
og sjónvarpi. Eldhúsið er vel búið eldhúsáhöldum, með ísskáp, eldavél,
kaffivél og brauðrist. Baðherbergið er með sturtu og þvottavél.
Íbúðirnar henta einstaklega vel hjónum og fjölskyldum með börn!
Grunnmynd af íbúðunum og fleiri myndir.
Forsæla er reyklaus gististaður. |

|